Nýkomin úr heitri laug á fjöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2013 08:00 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir voru kátar í Vaxjö í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
Tveir leikmenn í íslenska landsliðshópnum eiga enn eftir að spila sinn fyrsta landsleik en þetta eru þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir sem báðar spila með toppliði Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna. Anna Björk er 23 ára gömul og var valin í 23 manna hópinn en Soffía, sem er 25 ára, kom inn í hópinn þegar Katrín Ásbjörnsdóttir gat ekki verið með vegna meiðsla. „Það var mjög góð stund þegar ég var valin. Ég var í vinnunni og það voru vinnufélagarnir sem voru að athuga þetta því ég þorði ekki því ég var svo stressuð. Svo heyrði ég bara öskur og ég öskraði bara líka,“ segir Anna brosandi um þegar hún frétti það að hún væri að fara á EM.Aðeins aðra sögu er að segja af Soffíu.„Ég var bara komin í útilegu og var stödd uppi á miðhálendinu. Ég var nýkomin upp úr heitri laug þegar ég fékk símtalið klukkan níu um kvöldið. Þá frestaði ég bara öllu og brunaði í bæinn,“ rifjar Soffía upp. „Það er mikill heiður og þetta er mjög gaman,“ segir Soffía. „Ég var búin að stefna að þessu lengi þannig að það er gaman að vera komin hingað inn,“ segir Anna Björk.En hefur engin nýliðabusun farið fram? „Það er mjög vel tekið á móti okkur nýliðunum og ég bíð eiginlega eftir einhverjum hrekk,“ segir Soffía og Anna tekur undir það: „Ég held að það eigi eftir að koma stór bomba.“ Soffía er sammála. „Við eigum þetta eftir en vonandi verðum við teknar saman,“ segir Soffía. „Þó að við séum ekki enn þá búnar að fá að spila þá eru æfingarnar skemmtilegar,“ segir Soffía. „Þetta er góð gulrót og hvetur mann til að standa sig enn þá betur,“ segir Anna og Soffía bætir við: „Ég sætti mig ekki við það að vera á bekknum og verð að fara að setja pressu á þessar reynslumiklu í liðinu,“ segir Soffía í léttum tón að lokum.
Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Enski boltinn Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kristall Máni lagði upp en missti líka mark vegna VAR „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Jafntefli í Íslendingaslag Ekkert fær stöðvað lærisveina Sigga Ragga Linda Líf með mark í stórsigri Kristianstad Kolbeinn lagði upp jöfnunarmarkið í ótrúlegu 5-5 jafntefli Hjörtur og Kolbeinn máttu þola stórt tap gegn Degerfors Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Brynjólfur skoraði þegar Groningen vann stórsigur Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels Hafrún skoraði í öruggum sigri The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Sjá meira