Kári Árna: Var bara eins og handboltaleikur á tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2013 20:30 Kári Árnason fagnar í Sviss. Mynd/AFP
Kári Árnason, varnarmaður íslenska landsliðsins, vill ekki meina að íslenska vörnin hafi verið hriplek í 4-4 jafntefli á móti Sviss á föstudagskvöldið. Hann segir samt að liðið þurfi að bæta varnarleikinn fyrir Albaníuleikinn á þriðjudagskvöldið. „Ég held við í vörninni séum allir sammála um það að við hefðum frekar viljað að þessi leikur hafi endað 0-0. Í fyrri hálfleiknum erum við undir það mikilli pressu að þetta var erfitt. Þeir fá líka fjögur mörk á sig en það var enginn að segja að vörnin hjá þeim væri eitthvað slök," sagði Kári. „Þetta er bara einn af þessum leikjum þar sem þetta er fram og til baka. Þetta var bara eins og handboltaleikur á tímabili," sagði Kári. Hann er á því að miðverðirnir, hann og Ragnar Sigurðsson, hafi vantað meiri stuðning í leiknum. „Það var búið að segja við okkur að bakverðirnir ættu að sækja fram á við og það skilur okkur eftir svolítið berskjaldaða í vörninni þegar við erum að spila á móti liði með svona gæði. Í öðru markinu töpuðum við boltanum á miðjunni og þá er vinstri bakvörðurinn kominn fram í sóknina. Það er lítið sem við getum gert í því," sagði Kári. „Við gefum svolítið færi á okkur í fyrri hálfleik en í seinni hálfleiknum var þetta allt annað. Við þurfum samt að lagfæra ýmislegt. Við þurfum að vera þéttari. Þetta snýst ekki um það að við séum beint að taka of mikla áhættu heldur frekar að menn velji sér rétta tímapunktinn til þess að gera ákveðna hluti," segir Kári. „Við erum sterkir fram á við og menn segja að liðið hafi aldrei verið betra fram á við og það er örugglega rétt. Það er svolítið erfitt þegar við erum að ýta fleiri leikmönnum framar því þá eru náttúrulega færri að verjast," segir Kári. „Það er ekki það að vörnin sé eitthvað hriplek því það er flóknara en það ef við förum yfir mark fyrir mark. Það er hægt að laga þetta og við ætlum að reyna að gera það á móti Albaníu," sagði Kári sem er jákvæður fyrir leikinn.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Fleiri fréttir Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Hilmir fljótur að finna skotskóna í Tékklandi Häcken selur Fanneyju Ingu til Vålerenga Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Langar að taka pásu frá landsliðinu Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Villa að stela Manzambi af Newcastle Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ted Lasso-leikari spilaði sinn fyrsta leik í bandarísku B-deildinni Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Sjá meira