Erlent

Hjólaði í veg fyrir lest

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Lýst hefur verið eftir konunni en hún hefur ekki gefið sig fram.
Lýst hefur verið eftir konunni en hún hefur ekki gefið sig fram.
Birt hefur verið myndband úr öryggismyndavél þar sem hjólreiðakona í Cambridgeskíri á Englandi sleppur með skrekkinn eftir að hafa næstum því orðið fyrir lest.

Myndbandið sýnir konuna hjóla framhjá öryggishliði og út á teinana en þegar hún sér lestina koma æðandi að sér nær hún að bakka úr vegi hennar.

Lýst hefur verið eftir konunni en hún hefur ekki gefið sig fram. Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×