Kjötframleiðendurnir segjast hafa verið gabbaðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. febrúar 2013 14:08 Kjöt af hrossum var selt sem nautakjöt. Mynd/ Getty.
Hvorki Findus, sem framleiðir vinsælt lasagna, né Comigel, sem selur Findus kjöt í lasagnað, segjast bera ábyrgð á því að lasagnað hafi innihaldið hrossakjöt. Eins og fram hefur komið er grunur um að hrossakjöt og jafnvel kjöt af ösnum hafi verið notað í tilbúna rétti í stað nautakjöts. Vörur hafa verð innkallaðar, meðal annars hér á landi, vegna þessa hneykslis sem skekur nú alla Evrópu. Forstjóri Comigel segir hins vegar að fyrirtækið geti ekki borið ábyrgð á þessu máli. „Það var svindlað á okkur og það er nú ljóst að vandinn verður ekki rakinn til Findus eða Comigel," segir Erick Lehagre í samtali við danska blaðið Börsen. Findus hafði áður sagt að til stæði að höfða mál gegn Comigel vegna málsins. Þetta svindlmál vindur sífellt upp á sig og nú er ljóst að ráðherra neytendamála í Frakklandi og landbúnaðarráðherrann munu ræða það við alla hagsmunaaðila í kjötiðnaði í dag. Fram hefur komið að hrossakjötið umrædda er upprunalega frá Rúmeníu.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Sjá meira