Sinfónían nauðsynleg fyrir andlega heilsu þjóðarinnar Jakob Bjarnar skrifar 31. október 2013 08:53 Arna Kristín segir Sinfóníuna eiga í erfiðri umræðu og ekki bætti úr skák þegar borgarstjórinn sneiddi að henni í umræðu um fjárhagsáætlun.
Jón Gnarr borgarstjóri sneiddi mjög að Sinfóníuhljómsveit Íslands þegar hann kynnti fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar í vikunni. Arna Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníunnar segir hljómsveitina standa í erfiðri umræðu. Jón Gnarr vék harkalega að Sinfóníunni í ráðhúsinu í vikunni, sagði að þau þar létu sem um einkarekstur væri að ræða en það væri nú óvart svo að rekstrarfé komi frá ríki og borg - sem greiði 18 prósent kostnaðar. Rekstrarkostnaðaður samkvæmt fjárlögum væri 930 milljónir, hlutur borgarinnar í því væri því 168 milljónir. Hljómsveitin hafi farið framúr áætlun um sem nemur 70 milljónum og ekki hægt að ætlast til þess að borgin bjargi því. „Það ætti náttúrlega að vera öllum ljóst að þetta er hljómsveit sem rekin er af ríki og borg, sko,“ segir Arna Kristín hjá Sinfóníuhljómsveitinni um það hvort hljómsveitin formsái sína helstu bakhjarla. „Hins vegar verðum við að leita til stuðningsaðila til að afla tekna. En, við merkjum allt okkar útgefna kynningarefni með skjaldarmerkjum borgarinnar og ríkisins. Og erum stolt af því og teljum okkur mikilvæga fyrir Reykjavíkurborg. Og Reykjavíkurborg er okkur mikilvæg.“ Arna Kristín segist svo sem skilja að borgarstjóri sé ekki ánægður með hallarekstur á sveitinni. Og það þurfi að taka á því. En hluti vandans sé einmitt hærri rekstrarkostnaður sem er því samfara að hljómsveitin er nú komin í Hörpu, þar sem hún fær vonandi að dafna, en húsaleigukostnaður sé nú meiri en þegar hljómsveitin var í Háskólabíó. Og leiga renni til Reykjavíkurborgar sem á helming Hörpu. Ekki hefur farið hjá því að Sinfóníuhljómsveit Íslands hafi fengið sinn skerf af ónotum nú á tímum niðurskurðar. „Auðvitað getur þetta verið erfið umræða þegar þetta er sett upp sem Landspítalinn gegn Hörpu eða menningarstarfsemi. Það getur verið mjög erfitt að fara inn í slíka umræðu. En við höfum fundið fyrir miklum stuðningi áhorfenda. Þeim hefur fjölgað – við erum að sjá tvöföldun gesta á þessu 1. ári. Við erum að sjá mjög góðar áskriftartölur, fólk kemur hingað í stríðum straumum þannig að við getum ekki kvartað undan því að fólk hafi ekki tekið vel á móti okkur í þessu nýja húsi. En, við vitum að það sem við gerum skiptir máli; skiptir máli fyrir andlega heilsu þjóðarinnar og það skiptir máli fyrir menningarstig þjóðarinnar. En, eins og ég segi, það hefur verið ójafnvægi í rekstrinum við að flytja hingað inn, í þessar aðstæður í Hörpu, sem eru stórglæsilegar og hljómsveitin getur vaxið og dafnað í. En, þá er þetta vandi sem við glímum við; húsaleigukostnaður og annar kostnaður er hár og þetta dugar ekki einu sinni þó sértekjur hafi aukist mjög mikið.“
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira