„Fyrsta markmið að haldast heill“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. ágúst 2013 10:30 Kolbeinn Sigþórsson í góðum gír í sumar. Mynd/Heimasíða Ajax „
Ég var virkilega svekktur í maí þegar tímabilinu lauk. Ég var nýkominn á fullt á nýjan leik," segir landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson. Kolbeinn og félagar hans hjá Ajax hefja titilvörnina í Hollandi í kvöld þegar liðið mætir Roda JC. Kolbeinn skoraði sjö mörk í deildinni með Ajax á síðustu leiktíð en hann var lengi frá vegna meiðsla líkt og á hans fyrsta tímabili með liðinu. „Mér hefur gengið mjög vel í sumar," segir Kolbeinn í viðtali á heimasíðu Ajax. Hann segist hafa verið duglegur að æfa í sumar. „Það var auðvitað frí en ég ákvað að halda áfram að æfa í sumarfríinu mínu," segir Kolbeinn og markmiðið fyrir tímabilið er ljóst. „Fyrsta markmiðið á leiktíðinni er að haldast heill. Ef ég spila marga leiki og kemst í góðan takt þá vona ég að mörkin skili sér á leiktíðinni."Kolbeinn segist vilja bæta sig á hverju ári og það sé vel mögulegt. Hann æfi af krafti á hverjum degi hvort sem áherslan sé á taktík með Frank de Boer (aðalþjálfara Ajax) eða tækni með Dennis Bergkamp (aðstoðarþjálfara Ajax). Reikna má með því að Kolbeinn verði í byrjunarliði Ajax í kvöld við hlið þeirra Viktor Fischer og Bojan Krkic. Sá síðarnefndi verður í láni hjá Hollandsmeisturunum á leiktíðinni en hann er samningsbundinn Barcelona. „Við þurfum að læra á hlaupin hvor hjá öðrum og átta okkur á því hvenær hinn vill fá boltann," segir Kolbeinn. Bojan hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar undanfarin ár en gæti passað vel inn í spilið hjá Ajax. „Það tekur alltaf tíma að venjast aðstæðum en ég hef góða tilfinningu fyrir þessu. Bojan er leikmaður sem skilur liðsfélaga sína vel. Mér finnst við ná góðu sambandi."
Fótbolti Mest lesið Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Orri og félagar steinlágu fyrir Atletico Madrid Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna „Þurfum að nýta yfirburðina betur“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína „Vorum heilt yfir sterkari aðilinn“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Mark tekið af Hákoni í góðum sigri sem kemur Lille á toppinn Brighton valtaði yfir nýliðana Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri Þróttarar brutu bikarinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Sjá meira