Beðið um aðstoð til að bjarga 11 háhyrningum á Hudson flóa 10. janúar 2013 06:54
Bæjarstjórinn í bænum Inukjuak við norðanverðann Hudson flóann hefur beðið stjórnvöld um aðstoð við að bjarga 11 háhyrningum sem þar eru fastir í ís. Háhyrningarnir eru fastir undir samfelldum hafís við ströndina fyrir utan bæinn. Þeir hafa aðeins eina vök til að anda um en sú vök fer hratt minnkandi. Bæjarstjórinn Peter Inukpuk segir að háhyrningarnir verði æ örvæntingarfyllri eftir því sem vökin skreppur saman og eru lengi í burtu frá henni í einu, sennilega í leit að annarri vök. Svo virðist sem háhyrningar þessir hafi villst inn á þetta hafsvæði því þeir hafa ekki áður sést á þar í janúar. Bæjarstjórinn hefur beðið stjórnvöld um að senda ísbrjót á staðinn til að aðstoða háhyrningana áður en það verður um seinan og þeir kafna undir ísnum. Það eru hinsvegar engir ísbrjótar á lausu í augnablikinu vegna mikilla anna. Meðal annars er verið að bjarga þremur flutningaskipum sem nú sitja föst í ís á Lawrence fljótinu í Quebec. Hópur manna frá Hafrannsóknarstofnun Kanada er á leið til Inukjuak til að kanna aðstæður.Á myndskeiði sem fylgir þessari frétt getur þú séð hvalina fasta í ísnum. Myndbandið er tekið af bæjarbúa í Inukjuak.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Sjá meira