Netanjahú reynir að mynda breiða stjórn Guðsteinn Bjarnason skrifar 24. janúar 2013 07:00 Yair Lapid, sem er þekktur og virtur sjónvarpsmaður í Ísrael, vann óvæntan sigur með nýstofnuðum flokki sínum. fréttablaðið/AP
Snemma á síðasta ári tilkynnti Yair Lapid, þekktur sjónvarpsmaður í Ísrael, að hann hygðist stofna stjórnmálaflokk. Ári síðar er Yesh Atid, hinn nýstofnaði flokkur, orðinn sá næstfjölmennasti á ísraelska þinginu. Faðir hans, Tommy Lapid, lék sama leik fyrir tíu árum. Hann var einnig þekktur fjölmiðlamaður sem sneri sér að stjórnmálum, gekk til liðs við Shinui-flokkinn og vann mikinn kosningasigur. Yair er, eins og faðir hans, veraldlega sinnaður miðjumaður sem á auðvelt með að höfða til almennings. Hann hefur það nú í hendi sér hvort Benjamín Netanjahú getur setið áfram við stjórnvölinn. Hann segist ekki hafa áhuga á að mynda bandalag flokka sem hefði það markmið að halda Netanjahú frá völdum. Stjórnarflokkarnir héldu ekki meirihluta sínum á þingi, fengu samtals 60 þingsæti af 120 og þurfa því að fá liðsinni frá miðju- eða vinstriflokkum. Netanjahú hefur stuðst við smærri flokka strangtrúargyðinga en segist nú ætla að reyna að mynda breiða stjórn hófsamari hægri- og vinstriflokka. Staðan er hins vegar snúin því ólíklegt er að strangtrúarflokkarnir geti starfað með Lapid. Hann boðar stjórn sem fær þrjú meginverkefni: að svipta heittrúargyðinga undanþágu frá herskyldu, að gera húsnæðisverð viðráðanlegt og gera breytingar á stjórnkerfinu þannig að smærri flokkar hafi ekki þau miklu áhrif á stefnu ríkisstjórna og nú er. Versnandi kjör landsmanna hafa valdið verulegri ólgu á síðustu mánuðum og endurspeglast í úrslitum kosninganna, ekki síst í sigri flokks Lapids sem hefur lagt meiri áherslu á velferðarmál en öryggismál og samskiptin við Palestínumenn. Leiðtogar Palestínumanna segja að úrslit kosninganna hafi komið þægilega á óvart, en hafa þó efasemdir um að harðlínustefna Netanjahús muni breytast mikið: „Það kemur enginn frelsari, sem færir okkur frið með hraði," segir Hanan Ashrawi, þingkona á þingi Palestínumanna í Ramallah.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira