Aron: Ákvörðun mín gladdi pabba Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. ágúst 2013 07:53 „
Ég var bara íslenskur strákur að spila fótbolta í Danmörku," segir Aron Jóhannsson í viðtali við New York Times um augnablikið þegar Jürgen Klinsmann sló á þráðinn til hans. Sem kunnugt er kaus Aron á dögunum að spila fyrir hönd Bandaríkjanna frekar en Íslands. Þar sem Aron fæddist vestanhafs er hann bandarískur ríkisborgari og átti þess því kost. „Að fá símtal frá goðsögn og þjálfara bandaríska landsliðsins var sérstakt. Hann sýndi mér áhuga í meira en ár. Hann hringdi og hringdi og lýsti yfir áhuga á að ég spilaði fyrir Bandaríkin. Því meira sem ég hugsaði málið áttaði ég mig á tækifærunum," segir Aron í viðtali við Brian Sciaretta. Aron þurfti að hugsa sig um eftir símtalið frá Klinsmann. Hann var valinn í A-landslið Íslands en dró sig úr hópnum vegna meiðsla. Af sömu ástæðum gat hann ekki farið í æfingaferð með bandaríska landsliðinu um áramótin. Um svipað leyti var Aron keyptur til AZ Alkmaar í Hollandi þar sem hann varð fyrir bandarískum áhrifum. Jozy Altidore, fyrsti kostur í framlínu landsliðs Bandaríkjanna sem stendur, spilaði með AZ auk þess sem yfirmaður knattspyrnumála, Ernie Stewart, er fyrrverandi bandarískur landsliðsmaður. „Við spjölluðum saman um bandaríska landsliðið," segir Altidore við New York Times og bætir við að hann hafi hvatt Aron til að spila fyrir hönd Bandaríkjanna.Aron og Jozy Altidore fagna marki í leik með AZ Alkmaar í vor.Nordicphotos/Getty„Það fór alltaf vel á með okkur. Hann er klár leikmaður og ég er í skýjunum að hann hafi valið Bandaríkin. Hann á efir að reynast okkur mikill styrkur í framtíðinni," segir Altidore sem nú leikur með Sunderland. Ákvörðun Arons fór ekki framhjá Íslendingum. Í yfirlýsingu frá KSÍ var gefið í skyn að ákvörðun Arons væri að líkindum fyrst og fremst fjárhagslegs eðlis. Í yfirlýsingunni voru lög FIFA sögð gölluð og vonbrigðum lýst yfir ákvörðun Íslendingsins uppalda. „Hann hefur sína skoðun og ég mína," segir Aron um Geir Þorsteinsson, formann KSÍ. „Þetta er hans skoðun og ég virði hana. Margir sem ég hef rætt við hefðu viljað að Ísland hefði orðið fyrir valinu. Þeir skilja hins vegar að ákvörðunin var mín en ekki þeirra. Þeir virða það," segir Fjölnismaðurinn uppaldi. Aron segist hafa íhugað það vel og lengi hvort landsliðið hann ætti að velja. Á endanum hafi hann talið Bandaríkin betri kost fyrir sig og fjölskyldu sína. „Pabbi var sérstaklega spenntur. Þegar ég var yngri vildi hann að ég ætti þess kost að spila á hæsta mögulega stigi. Ákvörðun mín gladdi hann."
Fótbolti Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Eyjaálfa, fyrir utan Nýja-Sjáland, styður Infantino Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ „Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Stefndi í endurkomu en Siggi Raggi og lærisveinar eru úr leik Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Elvis kominn í Bítlabæinn Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Kjartan orðinn leikmaður Brann Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Mark 17 ára trölls, rassinn úti og bikar á loft Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Þoka í Færeyjum veldur vandræðum Sjá meira