Innlent

Fangelsismál: Konur komast loksins í opin fangelsi

Hrund Þórsdóttir skrifar
Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segir skort á vinnu fyrir fanga hérlendis.
Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segir skort á vinnu fyrir fanga hérlendis.
Athygli hefur vakið að aðeins ein kona situr nú af sér dóm í kvennafangelsinu í Kópavogi. Alls eru aðeins fjórar konur í íslenskum fangelsum í dag en fyrir nokkrum mánuðum voru þær 12 talsins. Yfirleitt eru konur um 5% fanga.

Yfirvöld fangelsismála hafa sætt gagnrýni fyrir að konur hafi ekki fengið aðgang að opnum úrræðum. Það hefur nú breyst og ástæðan fyrir því að aðeins ein kona situr nú í Kvennafangelsinu er að hinar þrjár eru á opnum úrræðum, tvær á Kvíabryggju og ein á Sogni. Þetta hefur verið reynt áður, með slökum árangri að sögn fangelsismálastjóra en hann segir að nú gangi þetta vel. „Það eru bættar reglur um samskipti kynjanna og við förum betur yfir það hvaða konur geta farið á opin úrræði og hvenær þær eru hæfar til þess, meðal annars út frá fíkniefnaneyslu,“ segir Páll Winkel, fangelsismálastjóri.

Konur og karlar eru því saman í opnu fangelsunum og Páll segir aðspurður fordæmi fyrir slíku erlendis, í smærri byggðarlögum. Hann segir að vissulega væri betra að hafa kynin aðskilin en að sambúðin gangi vel með ströngum reglum um umgengni.

Í Fréttablaðinu í dag segir aðstandandi fanga í Kvennafangelsinu að fangar þar búi við matarleysi. Þetta segir Páll ekki rétt. „Það sveltur enginn fangi á Íslandi. Fangar eru með að lágmarki 53 þúsund krónur á mánuði í mat og hreinlætisvörur, sem er um 26% meira en neysluviðmið og ef þeir eru í námi sem þeir fá greitt fyrir eða í vinnu þá hækkar það enn frekar,“ segir hann.

Í fréttinni kemur einnig fram að ekki sé næga vinnu að hafa fyrir fanga og það tekur Páll undir. „Okkur vantar alltaf vinnu, þannig að ef einhver þarna úti hefur hugmyndir að vinnu fyrir okkur værum við mjög þakklát fyrir það.“

Hann segir þó ýmislegt gert til að skapa vinnu fyrir fanga og að til dæmis hafi verið sett af stað bleikjueldi á Sogni og sauðfjárbúskapur á Kvíabryggju. „Þannig að við reynum allt sem við getum,“ segir hann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×