Ætlar á þing sem rannsóknarblaðamaður Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. ágúst 2013 11:23 Julian Assange á svölum sendiráðs Ekvadors í London í lok síðasta árs. Nordicphotos/AFP
Julian Assange vonast til þess að verða kosinn á þing í Ástralíu í næsta mánuði. Hann býður sig þar fram fyrir WikiLeaks-flokkinn. Hann er staðráðinn í að halda áfram starfi sínu fyrir Wikileaks, jafnvel þótt hann setjist á þing, og segist ekki sjá að hlutverk sitt sem öldungadeildarþingmanns verði ýkja frábrugðið því sem hann hefur verið að gera til þessa. Þetta kom fram í spjalli hans við ástralska blaðamenn á netinu í gærkvöld. „Við þurfum að senda snarpa rannsóknarblaðamenn inn á öldungadeildina,” er haft eftir honum á vefsíðu ástralska dagblaðsins The Age: „Fólk sem sérhæfir sig í að afhjúpa lygar og ljóstra upp um leynimakk.” Assange gerir sér jafnframt vonir um að geta loks komist út úr sendiráðsbyggingu Ekvadors í London, verði hann kosinn til þings. Bretum beri þá skylda til þess, samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum, að tryggja að hann komist úr landi. Assange hefur verið innilokaður í sendiráðsbyggingunni í meira en ár. Hann leitaði þar skjóls í júní á síðasta ári af ótta við að verða framseldur til Bandaríkjanna. Ekvador veitti honum pólitískt hæli í ágúst á síðasta ári, en bresk stjórnvöld segja að fari hann út úr byggingunni verði hann handtekinn og framseldur til Svíþjóðar, þar sem saksóknari vill ræða frekar við hann vegna ásakana um kynferðisbrot gegn tveimur konum. Assange óttast að framsalið til Svíþjóðar verði aðeins fyrsta skrefið í framsali hans til Bandaríkjanna, vegna uppljóstrana um bandarísk leyndarmál á vefsíðunni Wikileaks. Þingkosningar verða í Ástralíu þann 7. september.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Trump tókst að fella Massie Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Fleiri fréttir Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Sjá meira