Erlent

Meistaraverk fæst lánað til Ísraels

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Gestur á Uffizzi-safninu í Flórens á Ítalíu skoðar verk eftir Sandro Botticelli sem lána á til Ísraels á sýningu þar.
Gestur á Uffizzi-safninu í Flórens á Ítalíu skoðar verk eftir Sandro Botticelli sem lána á til Ísraels á sýningu þar. Nordicphotos/AFP
Ítalir hafa fallist á að lána til Ísraels eitt meistaraverka Botticellis frá 15. öld, að því er aðstoðarmaður menningarmálaráðherra Ísraels greindi frá í gær. Láninu hafði verið frestað vegna áhyggna Ítala af ástandinu í Sýrlandi.

Verkið er af því þegar erkiengillinn Gabríel birtist Maríu mey og tilkynnti henni um þungun hennar. Það nefnist Tilkynningin frá San Martino alla Scala og er kennt við San Martino-sjúkrahúsið þar sem það fannst.

Menningarmálaráðherrann er sagður hafa þurft að leggja nokkuð á sig til að fullvissa Ítali um að öryggi verksins yrði tryggt. Það verður til sýnis í fjóra mánuði, frá og með morgundeginum, í listasafni Ísraels í Jerúsalem.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×