Erlent

Mannskæð flóð í Colorado

Jakob Bjarnar skrifar
Flóðin í Colorado eru einhver þau mestu sem sögur fara af.
Flóðin í Colorado eru einhver þau mestu sem sögur fara af.
Tala látinna mun líklega hækka að sögn yfirvalda í Colorado en þar eru menn að glíma við afleiðingar einhverra mestu flóða þar sem sögur fara af.

Tveggja eldri kvenna er saknað en staðfest er að fjórir hafi látist vegna vatnselgsins. Barack Obama forseti lýsti yfir neyðarástandi um helgina. Ekki hefur tekist að ná sambandi við yfir fimm hundruð skráða íbúa í Boulder og Larimer-sýslum, þannig að enn er alls óvíst hver tala látinna verður þegar upp verður staðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×