Erlent

Slapp naumlega frá stórgrýti

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Það er kraftaverki líkast að ökumaður og farþegi bíls sem fékk á sig aurskriðu í norðurhluta Taívan hafi sloppið með lítilsháttar meiðsli. Aurskriða féll á fjölfarinn veg við Keelung og einnig stórgrýti sem staðnæmdist við hlið bílsins. Það hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum hefði stórgrýtið hæft bifreiðina.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan og má með sanni segja að ökumaðurinn og farþegi hafi haft heppnina með sér. Bíllinn skemmdist talsvert eins og sjá má í myndbandinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×