Fótbolti

Fyrstur til að skora framhjá James | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Jónsson, leikmaður Breiðabliks, skoraði eina mark sinna manna í 4-1 tapi gegn ÍBV í fyrradag. Hann varð þó fyrstur til að skora framhjá David James í Pepsi-deildinni.

Markið var stórglæsilegt, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. En það voru Eyjamenn sem fögnuðu í leikslok og er nú á toppi deildarinnar ásamt FH með fullt hús stiga og markatöluna 5-1.

James hefur spilað báða leiki ÍBV til þessa en hann hélt hreinu gegn ÍA í fyrstu umferðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×