Dagný og Sara rúlla þessu upp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2013 07:00 Dóra stefánsdóttir
Dóra Stefánsdóttir var meðal áhorfenda á leik Íslands og Hollands á EM í Svíþjóð á miðvikudagskvöldið þegar íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Dóra var með íslenska landsliðinu á EM fyrir fjórum árum og er hluti af kynslóðinni sem er hvað mest áberandi í liðinu í dag. Hún þurfti hins vegar að leggja skóna á hilluna alltof snemma vegna meiðsla. „Þetta var alveg magnað og algjör snilld,“ sagði Dóra Stefánsdóttir þegar Fréttablaðið hitti á hana fyrir utan völlinn í Vaxjö. „Ég var spennt og þetta var mjög gaman. Þær stóðu sig vel og ég er stolt af þeim,“ segir Dóra. En hvað finnst henni um miðjuna þar sem hún réð ríkjum um tíma í landsliðinu? „Dagný er búin að vera frábær á miðjunni. Ég vil kannski ekki segja að hún hafi komið mér á óvart en ég var ekki búin að sjá hana í langan tíma og hún er búin að standa sig rosalega vel. Hún og Sara rúlla þessari miðju upp,“ segir Dóra. „Það er allt fínt að frétta af mér en enginn fótbolti reyndar,“ segir Dóra, en ætlar hún taka fram skóna aftur? „Það er voðalega gaman að horfa og auðvitað hefði maður viljað spila svona leik en það nær varla lengra en það,“ segir Dóra en Hollandsleikurinn var fyrsti leikurinn á EM þar sem hún var í stúkunni. „Það er smá pressa á mig að mæta og ég vona að við getum reddað miðum á restina af leikjunum,“ sagði Dóra létt.
Mest lesið Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Enski boltinn Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Enski boltinn KR sækir ungan bakvörð út á landi Körfubolti ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Íslenski boltinn „Sýna að maður eigi það skilið“ Körfubolti Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Enski boltinn Bein útsending: Dagur eitt á heimsleikunum í CrossFit 2025 Sport Sigur í fyrsta leik hjá Jóhannesi Kristni Fótbolti Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Fótbolti Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Körfubolti Fleiri fréttir Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sigur í fyrsta leik hjá Jóhannesi Kristni Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Dönsk þrenna á Akureyri, dramatík í Víkinni og óheppni á Hlíðarenda Newcastle hafnar tilboði Liverpool Niko markahæstur og Gylfi stoðsendingahæstur í Sambandsdeildinni Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Gaf tannlækninum teinanna sína Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Missti ömmu sína á sama degi og hún vann EM Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Allt liðið gekk út á völl í Súperman búningum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Mikil dramatík en verðskuldaður sigur“ „Heyri í mínum mönnum í FCK“ „Svekktur og stoltur á sama tíma“ „Sleikjum sárin í kvöld“ Orri Sigurður: Ekki eins og heimurinn sé að farast „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ Sjá meira