Erlent

Mannskæð árás á lögreglustöð í Kirkuk

Meðlimur slökkviliðs á vettvangi árásarinnar.
Meðlimur slökkviliðs á vettvangi árásarinnar. MYND/AP
Þrjátíu og þrír, hið minnsta, létust og sjötíu særðust í árás sem gerð var á lögreglustöð í íröksku borginni Kirkuk í morgun.

Bíl hlöðnum sprengiefnum var keyrt inn í anddyri stöðvarinnar þar sem hann sprakk og í kjölfarið réðust menn vopnaðir hríðskotabyssum og handsprengjum inn með fyrrgreindum afleiðingum.

Árásarmennirnir voru dulbúnir sem lögreglumenn en áætlun þeirra var að ná yfirráðum á stöðinni. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á verknaðinum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×