Erlent

Hjónaband fær blessun látinnar eiginkonu

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Schmitz fékk bréf frá látinni eiginkonu sinni.
David Schmitz fékk bréf frá látinni eiginkonu sinni.
Bandaríska útvarpsstöðin „Star“ 102,5 hefur heldur betur slegið í gegn vestanhafs eftir uppákomu í þætti á stöðinni.

„Okkur barst ótrúlegt bréf á föstudaginn sem við urðum strax að bregðast við,“ sagði Scott Allen, yfirmaður stöðvarinnar.

Söguna má rekja til ársins 2011 þegar Brenda Schmitz greindist með krabbamein. Hún barðist við veikindin í töluverðan tíma en allt fór á versta veg og hún lést þó nokkru síðar.

Myndband úr þættinum má sjá neðst í fréttinni.

„Við höfum verið með dagskrálið sem nefnist jólaóskin nú í tuttugu ár þar sem við látum draum hlustenda rætast  á þessum árstíma,“ sagði Allen.

Bréfið var frá Brenda Schmitz og var skrifað fyrir tveimur árum, einum mánuði áður en hún lést. Hún hafði beðið vinkonu sína að senda bréfið um leið og eiginmaður hennar hafði kynnst annarri konu.

Í bréfinu tilgreinir Schmitz um þrjár óskir fyrir eiginmann sinn.

„Ég er með óskir fyrir David [eiginmann hennar], strákanna okkar, eiginkonu hans og jafnvel börnin hennar,“ segir í bréfinu.

„Ég vill að þau viti öll að ég elska þau mikið og óska ég þess að þeim líði ávallt vel saman.“

David og Brenda  Schmitz áttu saman fjóra syni: Carter, Josh, Justin og Max.

Forráðamenn útvarpstöðvarinnar höfðu áður tilkynnt David Schmitz að þeir ætluðu að láta ósk hans rætast en þegar hann mætti í útvarpsþáttinn sjálfan vissi hann ekkert um það hvað málið snérist.

Útvarpskonan Colleen Kelly las síðan upp bréfið fyrir David í þættinum og voru viðbrögðin ótrúleg.

Óskirnar þrjár

Fyrsta óskin snérist var til nýju eiginkonu David: „Hún er ótrúlega heppinn að vera partur af þessari fjölskyldu. Fáðu hana til að brosa á hverjum degi. Hún á skilið einn dekurdag þar sem allt verður gert fyrir hana,“ segir í bréfinu.

Önnur ósk Schmitz var til fjölskyldunnar: „Ég óska þess að þið farið öll saman í frábæra fjölskylduferð þar sem allir geta notið sín. Markmiðið er að varðveita minningar út ævina.“

Þriðja og síðasta óskin var til krabbameinsdeildarinnar á Mercy-spítalnum:

„Ég óska þess að starfsfólk deildarinnar fái eitt kvöld saman til að skemmta sér. Nóg af mat og drykkjum og frábært kvöld.“

Stöðin tilkynnti David að allar hennar óskir munu rætast og stöðin mun gera allt í sínu valdi til að svo verði.

Þessi nýja fjölskylda er því á leiðinni í Disney-garðinn í fjóra daga þar sem verður séð vel um þau.

Hér að neðan má sjá tvö myndbönd. Til að byrja með geta lesendur Vísis horft á innslag útvarpsþáttarins þegar David Schmitz mætti í þáttinn.

Síðan má sá viðtal við David Schmitz og núverandi eiginkonu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×