Þurftu að kaupa treyjurnar sínar af götusölum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. október 2013 09:17 Einn af leikmönnum Santa Fe. Mynd/Skjáskot
Leikmenn kólumbíska knattspyrnuliðsins Independiente Santa Fe neyddust til þess að spila í eftirlíkingum af búningum sínum gegn Boyaca Chico um helgina. Þannig er mál með vexti að búningastjóri liðsins gleymdi varabúningum liðsins heima. Aðaltreyja liðsins er of lík treyju Boyaca og því ljóst að liðið gæti ekki spilað í aðalbúningnum. Heimaliðið, sem er erkifjandi Independiente, neitaði að spila í varabúningum sínum til þess að leysa málið. Því voru góð ráð dýr. Búningastjórinn leitaði ekki langt yfir skammt. Hann hélt út á götu, keypti eftirlíkingar af varabúningi liðsins hjá götusölum en hver treyja kostaði andvirði um 800 íslenskra króna. Merkja þurfti treyjurnar með númeri og nafni. Til þess var notaður rauður tússpenni. Óþarfi að flækja hlutina. Svo fór að Independiente Santa Fe vann 2-0 sigur í leiknum. Talsmaður liðsins, Pablo Garcia, sagði vandræðin í aðdraganda leiksins hafa aukið á sigurgleðina. „Við erum í skýjunum þar sem Chico vildi ekki hjálpa okkur að leysa málið. Þeir reyndu að nýta sér vandræði okkar,“ sagði Garcia við Reuters.
Fótbolti Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Fótbolti Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Ajax riftir samningi Jordans Henderson Fótbolti Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Körfubolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Fleiri fréttir Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ajax riftir samningi Jordans Henderson Síðasti séns á að vinna milljónir Missum Hondúras upp fyrir okkur en höldum sama sæti á FIFA listanum Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid United boðið að skrapa botninn á tunnunni Samþykkja tilboð Tottenham í Kudus Frakkar sýndu styrk sinn Ancelotti dæmdur fyrir skattsvik Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Englendingar hrukku heldur betur í gang Lyon heldur sæti sínu í deildinni eftir allt saman EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan „Vissulega eru það vonbrigði“ „Þetta er það sem að mann dreymdi um“ „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Svona var blaðamannafundurinn fyrir leikinn gegn Noregi Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM „Að hlusta á ræður hjá henni gefur mér enn gæsahúð“ Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fagnaði ekki mörkunum tveimur gegn uppeldisfélaginu Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Pedro skaut Chelsea í úrslitin Uppgjörið: Egnatia - Breiðablik 1-0 | Grátlegt tap í Albaníu Fyrrum leikmaður United til liðs við Arsenal Óska eftir að að fyrsta leik deildarinnar verði frestað Sjá meira