Ferguson lætur ýmislegt flakka í nýrri bók Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2013 15:00 Sir Alex Ferguson. Mynd/AFP
Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United og einn sigursælasti stjóri knattspyrnusögunnar, gaf í dag út nýja ævisögu, My Autobiography, þar sem að karlinn lætur ýmislegt flakka. Meðal þess sem Ferguson segir frá í bókinni er það að umboðsmaður Wayne Rooney hafi beðið forráðamenn Manchester United um að selja leikmanninn, að Ferguson hafi tvisvar verið boðið að taka við enska landsliðinu og að mönnum hafi létt í klefa Manchester United þegar Roy Keane yfirgaf félagið. Ferguson var ekki hættur þar. Hann segir líka frá því að David Beckham hafi haldið að hann væri orðinn stærri karl en Sir Alex en í raun hafi Beckham aldrei verið toppleikmaður í hans huga. Ferguson segir líka frá deilum sínum við Rafa Benitez þegar Spánverjinn var knattspyrnustjóri Liverpool. Sir Alex segir ekkert vit hafa verið í leikmannakaupum Benitez og að hann hafi breytt keppni erkifjendanna í persónulegar deilur. Ferguson skýtur áfram á Liverpool og þá sérstaklega á Steven Gerrard sem hann telur aldrei hafa verið heimsklassaleikmann. Sir Alex segir að hann hafi haldið Gerrard vera kraftmikinn leikmann þangað til að Gerrard lenti í þeim Paul Scholes og Roy Keane. Sir Alex Ferguson segir Cristiano Ronaldo ennfremur vera hæfileikaríkasta leikmanninn sem hafi spilað undir hans stjórn og að hann hafi sagt við Ronaldo að fyrr myndi hann skjóta hann en selja hann til Real Madrid þegar fyrsta tilboðið kom frá Spáni. Það er hægt að sjá yfirlit yfir helstu sprengjur Sir Alex Ferguson í bókinni á vefsíðu Daily Mail en fréttina má sjá með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Sjá meira