Bankar hérlendis fylgjast grannt með ástandinu í Bandaríkjunum 9. október 2013 18:56
Bankar víða um heim hafa hafist handa við að undirbúa sig fyrir hugsanlegt greiðslufall Bandaríkjanna. Hagfræðingur hjá Landsbankanum segir að fylgst sé náið með ástandinu og að þegar hafi verið gripið til ákveðinna aðgerða. Fregnir bárust af því í morgun að breskir bankastjórar hefðu rætt við yfirmenn breska Seðlabankans um hugsanlegar aðgerðir ef allt fer á versta veg í Bandaríkjunum. Ljóst er að aðeins er hægt að koma upp takmörkuðum vörnum fyrir nýrri fjármálakreppu ef skuldaþakið verður ekki hækkað í Bandaríkjunum og greiðslufall blasir við. Menn vilja síður hugsa þá hugsun til enda og treysta á að höggvið verði á hnútinn í Bandaríkjunum innan tíðar. Daníel Svavarsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum segir að lengri tíma áhrifin sem fjármálaheimurinn hefur mestar áhyggjur af sé að það dragi umtalsvert úr hagvexti í Bandaríkjunum, jafnvel í nokkur ár. "Þar sem að bandaríska hagkerfið er það stórt mun það hafa áhrif á nánast öll hagkerfi heims, " segir Daníel.Innlendar fjármálastofnanir eru ekki ólíkar kollegum sínum erlendis og fylgjast vel með stöðu mála vestan hafs. Daníel segir að það sé lán í óláni að hérlendis séu gjaldeyrishöft þar sem þau verji bankana að einhverju leyti fyrir óróanum vestan hafs. Daníel, rétt eins og flestir aðrir á erfitt með að trúa því að bandarískir þingmenn nái ekki saman fyrir 17.október og stuðli þannig að nýrri fjármálakreppu um allan heim. En þó samkomulag náist ekki fyrir uppgefinn tíma, fer ekki allt á hliðina samdægurs. "Það má gera ráð fyrir því að þeir eigi laust fé í tvær vikur í viðbót til að standa við skuldbindingar sínar. Eftir það eiga þeir svo val um það hvort þeir vilja fara í greiðsluþrot á skuldabréfunum sínum eða skera mjög róttækt niður í öðrum útgjöldum og það verður að teljast líklegt að þeir velji þá leiðina í staðinn fyrir að standa ekki við alþjóðlegar skuldbindingar sínar," segir Daníel.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Fleiri fréttir N-listinn skákaði Framsókn Meirihlutinn á Akureyri fallinn „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Gísli Gunnar efstur í Grýtubakkahreppi Listi sveitarstjórans með flesta fulltrúa Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfkjörin í Kjósarhreppi Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Sjá meira