Öll börn í borginni eiga að fá næringarríka máltíð Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 23. september 2013 13:18 Um 20 þúsund börn fá mat hjá borginni á leikskóla, í grunnskólum og á frístundaheimilum. Mynd/Pjetur Sigurðsson
Verið er að þróa sameiginlegan gagnagrunn fyrir yfirmenn í skólamötuneytum Reykjavíkurborgar til að halda utan um hráefniskaup, matseðla og verð. Markmiðið er að samræma hráefniskaup í hverfum borgarinnar og tryggja að öll börn í borginni fái sambærilega næringarríka máltíð í skólanum samkvæmt ráðleggingum embættis Landlæknis. Helga Sigurðardóttir gæðastjóri mötuneytisþjónustu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir að kerfið sé í undirbúningi og þróun næstu þrjá mánuði. „Markmiðið er ekki að allir skólar hafi sama matseðil og allir borði nákvæmlega það sama á hverjum einasta degi. Það er of mikil stýring. En í dag erum við ekki með nægilega yfirsýn um samsetningu matarins, næringargildi og skammtastærðir. Við viljum bæta það og stuðla að því að hráefnið í öllum skólum sé gott,“ segir Helga. Í Reykjavík eru 90% allra grunnskólanema í mataráskrift í skólamötuneytum og alls eru 20 þúsund börn á leikskóla- og grunnskólaaldri sem fá mat úr mötuneytisþjónustu borgarinnar. Yfirmenn hinna fjölmörgu mötuneyta Reykjavíkurborgar munu geta nýtt þennan sameiginlega gagnagrunn sem mun innihalda uppskriftir og matseðla er uppfylla orku- og næringarþörf barna miðað við aldur. Sérhvert skólamötuneyti getur áfram matreitt að sínum hætti og haldið sínum sérkennum, en gagnagrunnurinn býður upp á aukna samvinnu matráða og fjölbreytni. Uppskriftir og matseðlar verða þannig þróaðir í samstarfi matráða og lögð áhersla á að þær uppskriftir sem eru vinsælar meðal barna verði áfram í boði og aðlagaðar til að mæta réttri næringarþörf.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Fleiri fréttir Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Sjá meira