Stjórn Merkels í hættu Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. september 2013 10:30 Philipp Rösler, leiðtogi Frjálsra demókrata og aðstoðarkanslari Þýskalands. Mynd/AP
Kristilega sósíalbandalagið (CSU) vann yfirburðasigur í þingkosningum í Bæjaralandi í gær og hlaut hreinan meirihluta. Þetta eru góðar fréttir fyrir Angelu Merkel Þýskalandskanslara, því CSU er systurflokkur Kristilega demókrataflokksins hennar. Kristilegum demókrötum er spáð góðu gengi í þingkosningum, sem haldnar verða í öllu Þýskalandi um næstu helgi, og gott gengi systurflokksins í Bæjaralandi bendir til að Merkel geti einnig hlotið góða kosningu. Slæmu fréttirnar fyrir Merkel eru hins vegar þær að Frjálsir demókratar, samstarfsflokkur hennar í ríkisstjórn Þýskalands, náðu ekki manni inn á þing í Bæjaralandi. Þeir fengu minna en fimm prósent atkvæða, og eru þar með komnir undir lágmarkið sem þarf til að ná manni á þing. Á landsvísu mælast Frjálsir demókratar með um það bil fimm prósent atkvæða, þannig að fari þeir undir markið í kosningum til þýska þjóðþingsins um næstu helgi, þá er samstarf Kristilegra demókrata við Frjálsa demókrata úr sögunni. Þá kemur til kasta Sósíaldemókrataflokksins, sem gæti komist í þá stöðu að geta valið á milli stjórnarsamstarfs með Merkel til hægri eða með Græningjum og Vinstriflokknum.
Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Sjá meira