Suárez með bæði mörkin í sigri í Perú Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2013 11:00 Luis Suárez fagnar í nótt. Mynd/AFP
Luis Suárez skoraði bæði mörk Úrúgvæ þegar liðið sótti þrjú stig til Perú í undankeppni HM í fótbolta í nótt. Þetta var fyrsti alvöru leikur kappans í nokkurn tíma því hann er að taka út leikbann hjá Liverpool. Suárez skoraði mörkin sín á 43. og 67. mínútu en fyrra markið kom úr víti. Perú missti mann af velli í uppbótartíma fyrri hálfleiks en náði engu að síður að minnka muninn með marki Jefferson Farfán á 84. mínútu. Luis Suárez er nú markahæstur í Suður-Ameríku riðlinum en hann hefur skorað 10 mörk í 11 leikjum eða einu marki meira Gonzalo Higuaín og tveimur mörkum meira en Lionel Messi. Higuaín og Messi spila báðir með Argentínu en argentínska landsliðið var ekki að spila í nótt. Luis Suárez náði ennfremur tveggja marka forskoti á Diego Forlán í baráttunni um toppsætið á listanum yfir markahæsta menn landsliðs Úrúgvæ frá upphafi. Suárez hefur nú skorað 38 mörk í 71 leik en Forlán er með 36 mörk í 104 leikjum. Forlán fór meiddur af velli strax á 25. mínútu í leiknum í Perú í nótt. Kólumbíu náði Argentínu að stigum á toppi Suður-Ameríku riðilsins með 1-0 sigur á Ekvador en báðar þjóðir eru með 26 stig í 13 leikjum. Síle (24 stig í 14 leikjum) og Ekvadori (21 stig) sitja síðan í næstu tveimur sætum en fjögur efstu sætin gefa beint sæti á HM. Úrúgvæ er í 5. sætinu með 19 stig eða þremur stigum meira en Venesúela en fimmta sætið gefur sæti í umspili við lið frá Asíu.
Enski boltinn Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira