Vonskuveður í lok vikunnar Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. ágúst 2013 18:07 Mynd úr safni. mynd/vilhelm
Veðurstofan gerir áfram ráð fyrir vonskuveðri í lok vikunnar. Nokkrar breytingar hafa orðið á fyrri spám og vindstrengurinn hefur færst nokkuð vestar. Enn er spáin að breytast og er gert ráð fyrir að lægðin sem gengur yfir dýpki mjög hratt. Nokkur óvissa er um í hvaða landshluta veðrið verður verst, en gera má ráð fyrir slæmu veðri víða á landinu. Einnig má búast við ísingu þegar kólnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Deildin hefur síðustu daga verið í sambandi við lögreglustjóra, almannavarnanefndir, sveitarstjóra, bændur, og ferðaþjónustuaðila og fleiri og hvatt þá til að fylgjast með veðurspám, og upplýsa þá sem eru á ferð um veðurútlit og grípa til aðgerða ef með þarf með öryggi almennings að leiðarljósi. Þá fundaði almannavarnadeildin með fulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjörgu og Safe Travel í dag, en björgunarsveitarmenn á vegum hálendisvaktarinnar hafa farið um svæðið norðan Vatnajökuls og mið- hálendið og upplýst hjólreiðamenn, göngumenn, ökumenn og aðra sem þar eru á ferð. Upplýsingamiðstöðvar ferðaþjónustunnar, gististaðir, skálaverðir og landverðir hafa einnig fengið tilkynningar um það veður, sem er í aðsigi. Svæðisstjórnir björgunarsveita hafa einnig allar verið upplýstar. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist áfram með framvindunni í samvinnu við Veðurstofuna og miðlar upplýsingum á vef Almannavarna og á Facebook-síðu deildarinnar.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Fleiri fréttir Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Sjá meira