Fótbolti

Hægt að nýta fjarveru Gylfa til góðs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson.
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson. Mynd/Vilhelm

Lars Lagerbäck, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, er bjartsýnn fyrir viðureign Íslands og Slóveníu í undankeppni HM 2014 á Laugardalsvelli á morgun.

Svíinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag ásamt aðstoðarmanni sínum Heimi Hallgrímssyni og leikmönnunum Aroni Einari Gunnarssyni og Kolbeini Sigþórssyni.

Að sögn Lagerbäck eru allir leikmenn liðsins klárir í slaginn. Aron Einar og Birkir Bjarnason hafi aðeins misst úr eina til tvær æfingar en þeir séu í góðu lagi. Hið sama gildi um aðra leikmenn.

Þeir Heimir hafa komist að niðurstöðu um hvaða ellefu leikmenn byrji leikinn annað kvöld. Lagerbäck segir þá hafa neglt þá ákvörðun eftir æfingu liðsins í hádeginu. Sá sænski segist sífellt verða meira upp með sér hvað leikmenn íslenska liðsins varði. Þeir komi honum sífellt á óvart með frammistöðu sinni innan sem utan vallar.

Lagerbäck hefur mestar áhyggjur af dómgæslunni á morgun, þ.e. að þýska dómaraþríeykið muni leyfa of mikla hörku. Þannig hafi Slóvenar komist upp með mjög harðan leik í 2-0 sigrinum á Tyrkjum í æfingaleik á dögunum. Hann reiknar með miklum baráttuleik.

Aðspurður hvað þurfi að bæta frá leiknum í Slóveníu segir hann að menn þurfi að vera ákveðnari í föstum leikatriðum. Menn hafi staðsett sig rétt í fyrri leiknum en skort ákveðni.

Aron Einar og Kolbeinn sögðu góða stemmningu í hópnum og ekki yfir neinu að kvarta. Þeir segja landsliðsmenn finna fyrir væntingum en fyrst og fremst setji þeir pressu á sig sjálfir. Þá lofaði Kolbeinn, á léttu nótunum, að nýta jafngóð færi og hann fékk í fyrri leiknum í Slóveníu.

Gylfi Þór Sigurðsson verður í leikbanni á morgun. Lagerbäck segir að þótt Gylfa og hans hægri fótar verði saknað opni það á aðra möguleika fyrir landsliðið. Liðið geti bætt leik sinn á annan hátt í fjarveru spyrnusérfræðingsins.

Blaðamannafundurinn var í beinni textalýsingu á Vísi og má sjá hana hér að neða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×