„Er fólk ekki betur innrætt en þetta?“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 21. maí 2013 10:55 Það voru athugasemdir við frétt á Vísi sem ollu því að Bubbi fékk nóg. fréttablaðið/valli
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens bloggar í dag undir fyrirsögninni „Nú er nóg komið“, og segir það daglegt brauð að fólk sé „atað auri og skít á kommentakerfum dagblaðanna“ fyrir það eitt að hafa skoðanir. Það voru athugasemdir við frétt á Vísi sem ollu því að Bubbi fékk nóg, en fréttin var um skoðun Bubba á Eurovision-þátttöku Eyþórs Inga. „Hvað fær fólk til þess að opinbera getuleysi sitt í að lesa það sem skrifað er? Það var alveg skýrt að ég gerði ekkert annað en hrósa Eyþóri, sem besta söngvara landsins og telja hann of góðan fyrir þessa keppni. Það stendur skýrum stöfum.“ Bubbi segist hafa reynt að horfa fram hjá því hvernig sumir skrifa um hann á kommentakerfunum, en engin manneskja eigi að láta bjóða sér það að vera ausin svívirðingum fyrir skoðanir sínar. „Dónaskapurinn í athugasemdakerfunum fær mann til að blöskra. Í sumum tilfellum er fólk ærumeiðandi og ummælin vekja hjá mér undrun og sorg.“ Bubbi segir í bloggfærslunni að umræðan hafi stigversnað frá efnahagshruninu, og nefnir því til stuðnings tvö nýleg dæmi. Annars vegar pistil Kolbrúnar Bergþórsdóttur um fótbolta og hins vegar ummæli Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um opnunartíma Vínbúðanna. „Er fólk ekki betur innrætt en þetta? Ég hvet fólk til þess að stíga niður og skoða málin. Er það svona sem við viljum að umræðuhefðin hér á landi sé? Hver sem þú ert eða hvað sem þú gerir, þá getur þú ekki látið þetta viðgangast. Börnin þín lesa þetta, fjölskylda, vinir, ættingjar og vinnufélagar. Það er komin tími á að fólk beri ábyrgð á því hvernig það skrifar um aðra og talar. Það sem fer á netið verður ekki aftur tekið. Nú er nóg komið.“
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira