Erlent

Kennsl borin á skotmann

Jakob Bjarnar skrifar
Mynd frá öryggismyndavél en skotmaðurinn sést hér taka til fótanna.
Mynd frá öryggismyndavél en skotmaðurinn sést hér taka til fótanna.
Lögreglan í New Orleans hefur borið kennsl á manninn sem hóf skothríð á skrúðgöngu sem marseraði í tilefni Mæðradagsins á sunnudaginn.

Byssumaðurinn særði 19 manns, þar á meðal tvö börn, áður en hann tók til fótanna. þykir mildi að enginn lést í árásinni. Gríðarleg reiði ríkir í New Orleans vegna málsins og hefur lögreglan heitið því að málið verði upplýst. Hún hefur nú lýst eftir Akein Scott, 19 ára gömlum, sem grunaður er um verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×