Erlent

Páfinn fordæmir þrælahald í Dhaka

Jakob Bjarnar skrifar
Hörmungarnar í Dhaka munu draga dilk á eftir sér.
Hörmungarnar í Dhaka munu draga dilk á eftir sér.
Evrópusambandið hugleiðir nú að setja viðskiptabann á Bangladesh í kjölfar hins hörmulega slyss sem varð þegar bygging hrundi í Dhaka og olli dauða fleiri en 400 verksmiðjustarfsmönnum. Þetta er hugsað til að mótmæla bábornum kjörum verkamanna og því að öryggisatriði eru forsmáð. Þá hefur Francis páfi fordæmt aðbúnað verkamannanna og talað um nútíma þrælahald en verkamann í Dhaka mótmæltu þúsundum saman í 1. mai göngu og sumir kalla eftir dauðarefsingu yfir þeim sem ber ábyrgð á ástandi byggingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×