Erlent

Skattaafsláttur fyrir nautaat

Milli áranna 2007 og 2011 fór fjöldi nautaata á Spáni úr 3.650 í 2.290.
Milli áranna 2007 og 2011 fór fjöldi nautaata á Spáni úr 3.650 í 2.290. Mynd/Getty
Spænska þingið grípur nú til aðgerða til þess að auka vinsældir nautaats.

590 þúsund undirskriftir hafa borist þinginu og ráðamenn hvattir til að skilgreina nautaat sem hluta af menningararfleifð Spánverja samkvæmt lögum, og mun það veita skipuleggjendum viðburða skattaafslætti og afnema bann við nautaati í austurhluta Katalóníu.

Meirihlutaþingflokkur forsætisráðherrans Mariano Rajoy hyggst styðja undirskriftarlistann og hefjast handa þegar í stað við að setja tillöguna í lög.

Milli áranna 2007 og 2011 fór fjöldi nautaata á Spáni úr 3.650 í 2.290 og varð vinsældahrunið til þess að ræktendur bardaganauta þurftu að senda dýrin til slátrunar í stórum stíl. Er vonast til að nýju lögin muni hjálpa til við að auka vinsældir nautaats á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×