Erlent

Vill að vændiskonur hafi sömu réttindi og aðrir launþegar í Danmörku

Íhaldsflokkurinn í Danmörku vill að vændiskonum verði gert kleyft að skrá sig í verkalýðsfélög og njóta sömu réttinda og aðrir launþegar.

Í frétt um málið í Politiken segir að Íhaldsflokkurinn telji að vændi eigi að vera lögleg starfsgrein en sem stendur eru vændiskonur í Danmörku á gráu svæði hvað þetta varðar þegar kemur að atvinnuréttindum þeirra.

Mari Hendriksen talsmaður Íhaldsflokksins segir að vændiskonur eigi að hafa aðgang að atvinnuleysisbótum, veikindadögum og öðrum réttindum sem launþegar hafa í Danmörku. Þetta sé best tryggt með því að vændiskonurnar geti orðið meðlimir í verkalýðsfélögum eða þá með því að stofna eigið verkalýðsfélag.

Aðspurð um hvort þetta muni ekki bara fjölga vændiskonum í Danmörku segir Hendriksen að hún telji svo ekki vera. Bendir hún á reynsluna frá Nýja Sjálandi. Þar var vændiskonum leyft að ganga í verkalýðsfélög og fá fyrrgreind réttindi. Sú ráðstöfun hafi ekki fjölgað vændiskonum á Nýja Sjálandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×