Afi togaði hákarl frá barnahópi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2013 12:51
62 ára gamall ferðamaður slapp með skrekkinn þegar hann togaði í hákarl sem synti í grunnu vatni við strönd Ástralíu í gær. Ungir sem aldnir voru við leik á ströndinni þegar gestinn óvelkomna bar að garði. Þrátt fyrir viðvaranir gæslumanna um að engin afskipti skildi hafa af hákarlinum hélt maðurinn, Paul Marshallsea frá Wales, aftur af hákarlinum. Litlu munaði reyndar að illa færi þegar afinn missti tak sitt á hákarlinum sem reyndi að bíta hann að sögn Marshallsea. „Hann rétt missti af mér, hann var hársbreidd frá fæti mínum. Hákarl sem mínútu áður var ljúfur sem lamb tók næstum af mér fótinn," sagði Marshallsea í viðtali við Daily Mirror. „Það er grunnt á um sex metra svæði þar sem hákarlinn hafði gert sig heimankominn. Það voru fjölmörg börn og ungabörn að busla í vatninu," sagði Marshallsea og bætti við að eðlishvöt hans hefði tekið yfir. „Það hefði getað farið mjög illa," sagði Walesverjinn. Atvikið átti sér stað á Bulcock-ströndinni um 88 kílómetra norðan af Brisbane. Talið er að hákarlinn hafi synt í átt að landi vegna meiðsla eða veikinda. Hann hafi því verið taugaóstyrkur og átt erfitt með að átta sig á aðstæðum. Segja má að Marshallsea beri svo sannarlega nafn með rentu. Væri eftirnafni hans snúið upp á íslensku mætti kalla hann Pál „sjávarstjóra". Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Sjá meira