Ólöglegt að opna "læsta" farsíma 26. janúar 2013 18:05 Nordicphotos/AFP
Farsímanotendur vestanhafs eru að öllum líkindum heldur svekktir með ný lög sem tóku gildi í dag. Nú er ólöglegt að láta opna „læsta" farsíma sína nema með samþykkis símafyrirtækis síns. Símafyrirtæki í Bandaríkjunum hafa undanfarin ár selt dýra snjallsíma á mun ódýrara verði gegn því að notendur skuldbindi sig hjá fyrirtækinu til lengri tíma. Í samningnum felst mánaðarleg greiðsla sem getur verið til nokkurra ára. Algengur samningstími er tvö ár og að því loknu hafa símanotendur greitt mun hærri upphæð en sem hefði numið að kaupa farsímann án samnings. Með læsingu er átt við að símann er aðeins hægt að nota innan símkerfis þess símafyrirtækis sem seldi símann. Ekki er hægt að hringja innan annars símkerfis nema leitað sé til þriðja aðila sem getur brotið læsinguna á bak aftur. Bandarískir farsímaeigendur, í áskrift hjá þarlendum símafyrirtækjum, geta því t.d. ekki tengst íslenskum símkerfum á meðan á dvöl þeirra hér á landi stendur. Fjölmargir símanotendur kaupa sér nýja síma áður en samningstímanum við viðkomandi símafyrirtæki lýkur. Í þeim tilfellum hafa notendur átt þess kost að láta þriðja aðila opna gamla símann og selja hann sjálfir. Nú er það orðið ólöglegt. Hámarksrefsing við því að láta opna „læstan" síma er 2500 dalir eða um þrjú hundruð þúsund krónur. Ætli einhver að hagnast af því að selja áður læstan síma getur refsingin numið 500 þúsund dölum eða rúmum sextíu milljónum króna auk fangelsisvistar.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Sjá meira