Ætla að grafa upp 36 Spitfire orrustuflugvélar í Burma 5. janúar 2013 13:04
Hópur sérfræðinga er nú á leið til Burma en ferð þeirra þangað er lokahnykkurinn í 17 ára langri leit að 36 Spitfire Mark XIV orrustuflugvélum sem grafnar voru í jörðu þar í landi skömmu eftir að seinni heimstyrjöldinni lauk. Sá sem stjórnar leitinni er bóndinn David Cundall frá Lincolnskíri í Englandi en hann komst á snoðir um þessar Spitfirevélar árið 1996. Til eru gögn um að vélarnar, sem þá voru nýjar af nálinni og enn í trékössunum sem þær voru fluttar í, hafi verið grafnar í jörðu að skipun Mountbatten lávarðar. Ástæðan var að engin not fundust fyrir þær á þessum tíma, það er í lok ársins 1945. Hópurinn mun hefja leit sína við alþjóðaflugvöllinn í Yangoon en heimildir eru fyrir því að Spitfirevélarnar séu grafnar niður við endann á einni flugbrautinni þar. Raunar gæti verið að allt að 124 flugvélar af ýmsum gerðum úr stríðinu séu grafnar í jörðu á þessu svæði. Samkomulag hefur náðst við stjórnvöld í Burma um að hagnaðurinn af sölu þessara flugvéla skiptist jafnt milli stjórnvalda og hópsins. Algengt verð á Spitfirevélum sem eru í góðu ásigkomulagi hleypur á einni til tveimur milljónum punda eða allt að 400 milljónum króna.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira