Notkun aspirin tengd sjónleysi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. janúar 2013 14:21 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Nordicphotos/Getty
Vísindamenn í Ástralíu hafa sýnt fram á að þeir sem reglulega nota verkjastillandi lyfið aspirin séu líklegri til þess að missa sjón. Niðurstöður rannsóknarinnar, sem birtar voru í læknaritinu JAMA Internal Medicine, segja að þeir sem nota aspirin séu líklegri til þess að verða fyrir votri rýrnun í miðgróf sjónu. Rýrnunin skerðir miðsvæðið í sjónsviði fólks. Rannsakendur segja niðurstöðurnar þó ekki nógu afdráttarlausar til þess að ástæða sé til að setja hömlur á notkun lyfsins. Daglegir en litlir skammtar af aspirin draga úr líkum á hjartaáfalli hjá sjúklingum sem glíma við hjarta- og æðasjúkdóma. Þá bendir ýmislegt til þess að lyfið geti komið í veg fyrir krabbamein eins og lesa má um nánar hér. Rannsóknin fór fram við Sydney-háskóla í Ástralíu og náði til 2,389 einstaklinga. Einn af hverjum tíu tóku aspirín að minnsta kosti einu sinni í viku. Flestir þátttakendanna voru á sextugsaldri. Sjónpróf voru gerð eftir fimm, tíu og fimmtán ár. Rýrnunar varð vart í sjónu 9,3% þeirra sem tóku aspirín en 3,7% þeirra sem ekki notuðu lyfið. Hægt er að kynna sér rannsóknina nánar á fréttavef BBC, sjá hér.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Sjá meira