Innlent

Alls 42 brot tillkynnt lögreglu á einum mánuði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Alls voru 42 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu í janúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í afbrotatíðindum lögreglmanna en þar kemur fram að um sé að ræða óvenjumörg mál miðað við þróun síðustu ára.

Afbrotatíðindi ríkislögreglustjóra á árinu 2013 eru með aðeins öðru sniði en fyrri ár. Umfjöllunin sem birtist efst í afbrotatíðindunum er breytileg, en þar er reynt að bregðast við umræðunni í samfélaginu hverju sinni eða birtar upplýsingar sem taldar eru gagnlegar fyrir almenning. Myndirnar fjórar sem birtast neðst munu hins vegar vera settar fram með sama hætti, en eru uppfærðar í hverjum mánuði.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að í því umdæmi eru sextán brot til rannsóknar, eins og sagt var frá fyrr í morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×