Fótbolti

Martin O'Neill að taka við írska landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin O'Neill.
Martin O'Neill. Mynd/NordicPhotos/Getty
Breskir miðlar greina frá því að Martin O'Neill muni taka við írska landsliðinu í fótbolta í síðasta lagi í næstu viku. Írar eru að leita að landsliðsþjálfara eftir að Ítalinn Giovanni Trapattoni hætti með liðið í haust.

Martin O'Neill er fyrrum knattspyrnustjóri Sunderland, Celtic og Aston Villa en hann er 61 árs gamall Norður-Íri. Svo vissir eru veðbankar að hann taki við írska landsliðinu að þeir hafa lokað fyrir möguleikann á að veðja á O'Neill sem næsta landsliðsþjálfara.

Giovanni Trapattoni hætti með írska landsliðið í september eftir að ljóst varð að liðið átti ekki lengur möguleika á að komast á HM í Brasilíu.

Mick McCarthy, knattspyrnustjóri Ipswich Town, var ítrekað orðaður við stöðuna en ekkert virðist ætlar að verða að því að McCarthy taki aftur við írska landsliðinu sem hann þjálfaði frá 1996 til 2002.

Martin O'Neill lék á sínum tíma 64 landsleiki fyrir Norður-Írland en hann hefur verið atvinnulaus síðan að Sunderland rak hann í mars eftir að liðið lék átta leiki í röð án þess að ná að vinna leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×