Skattamál Helle Thorning Schmidt í brennidepli 28. ágúst 2012 06:53
Skattamál Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra Danmerkur er aftur komið í sviðsljósið vegna máls sem tekið verður fyrir í réttarsal í Söborg í dag. Málið er forsíðufrétt í öllum dönskum fjölmiðlum þennan morguninn en þar í landi er málið kallað Stóra skattamálið. Talið er að það gæti orðið jafnalvarlegt og Tamil málið var fyrir Poul Schlüter árið 1993 en Schlüter neyddist þá til að segja af sér sem forsætisráðherra, að því er segir í blaðinu BT. Málið fjallar um það að upplýsingum var lekið til Ekstra Bladet um skattaframtal Helle Thorning Schmidt og eignmanns hennar Stephen Kinnocks í fyrra. Þar kom m.a. fram að Kinnock, sem er breskur ríkisborgari, greiðir ekki skatta í Danmörku heldur í Sviss þar sem hann vinnur og sparar sér þar með stórar fjárhæðir. Þau hjónin höfðu áður staðhæft að þau væru bæði búsett í Danmörku og borguðu skatta í samræmi við danskar reglur. Réttarhöldunum í Söborg er m.a. ætlað að rannsaka með hvaða hætti Ekstra Bladet fékk upplýsingarnar í sínar hendur. Málið kom upp í miðri kosningabaráttunni til danska þingsins í fyrra. Talið er að áhrifamenn innan Venstre hafi lekið upplýsingunum til blaðsins. Reynist það rétt er um alvarlegan glæp að ræða og gæti flokkurinn beðið mikinn skaða af því. Helst beinast spjótin að einum af spunameisturum Venstre en hann er einn af þeim sem kallaður verður fyrir réttinn nú fyrir hádegið. Eins og kunnugt er kom Helle Thorning Schmidt í opinbera heimsókn til Íslands í gærdag en hún heldur síðan til Grænlands í dag.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira