Erlent

Stærsta olíuhreinsistöð Venesúela logar enn

Hvorki gengur né rekur hjá slökkviliðsmönnum þeim sem berjast við mikinn eldsvoða í stærstu olíuhreinsistöð Venesúela.

Eldsvoðinn hefur hingað til kostað 48 manns lífið fá því hann hófst um helgina. Tveir stórir olíutankar hafa sprungið í loft upp og í gærkvöldi náði eldurinn til þriðja tanksins.

Hugo Chavez forseti Venesúela hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna eldsvoðans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×