Erlent

Köttur forsætisráðherrans búinn að drepa sína fyrstu mús

Á meðan David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, er í sumarfríi er nóg að gera hjá heimiliskettinum Larry að Downing-stræti 10. Þessi fimm ára gamla læða hefur nefnilega drepið sína fyrstu mús frá því að hún flutti inn á heimilið ásamt forsætisráðherra-hjónunum. Blaðið Independent fjallar um drápið á vef sínum í dag. Þar staðfestir talsmaður Downings-strætis að kötturinn hafi drepið mús í morgun - sem þykir sæta stórtíðindum á heimilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×