Erlent

Obama hvetur íbúa til þess að flýja

Barack Obama á blaðamannafundinum í morgun.
Barack Obama á blaðamannafundinum í morgun. mynd/afp
Barack Obama, bandaríkjaforseti, varaði íbúa, sem búa í borgum við Mexíkóflóa, við því að hitabeltisstormurinn Ísak, sem búist er við að verði að fellibyl á næstu klukkutímum, geti valdið gríðarlegum flóðum á svæðinu.

Obama hélt stuttan blaðamannafund í Hvíta húsinu í dag þar sem hann fór yfir stöðu mála. Hann hvatti íbúa til að flýja heimili sín og sagði íbúa verða að taka fyrirmælum stjórnvalda alvarlega.

Á morgun eru sjö ár liðin frá því að fellibylurinn Katrín olli gríðarlegum skemmdum í borginni New Orleans. Búist er við að fellibylurinn gangi á landi í þeirri borg í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×