50 ár frá dauða Monroe 5. ágúst 2012 10:36
Hálf öld er í dag liðin frá því að bandaríska leikkonan Marilyn Monroe lést og er fjöldi dyggra aðdáenda þokkagyðjunnar nú samankominn í heimabæ hennar. Þrátt fyrir að þokkagyðjan hafi verið skírð Norma Jeane Baker þekkja flestir hana undir nafninu Marilyn Monroe. Hún hóf feril sinn sem fyrirsæta en fékk samning við kvikmyndaver á fimmta áratug síðustu aldar. Í fyrstu voru hlutverkin ekki stór í sniðum en ekki leið á löngu þar til hún varð ein skærasta stjarnan í Hollywood. Allt í allt lék hún í tuttugu og níu fullgerðum kvikmyndum og þar að auki í myndinni Something's Got to Give sem ekki náðist að klára. Það var þó ekki þessi velgengni sem vakti mesta athygli því einkalíf þokkagyðjunnar hefur ávallt verið á vörum fólks. Hún var þrígift og átti í ástarsambandi við marga heimsþekkta menn, þar á meðal hefur því verið haldið fram að hún hafi átt í leynilegu ástarsambandi við John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Síðustu ár ævi sinnar átti hún við veikindi að stríða og var orðin háð svefnlyfjum þar sem hún svaf illa sem ekkert. Hún fannst látin á heimili sínu í Los Angeles á þessum degi árið 1962, 36 ára að aldri, en talið er að of stór skammtur af lyfjunum hafi dregið hana til dauða. Það hefur þó oft leikið vafi á því hvort hún hafi framið sjálfsmorð með of stórum skammti en nýlega var greint frá því að AP fréttastofan hefði farið fram á að fá aðgang að skýrslum bandarísku alríkislögreglunnar um hana en var tjáð að þær væru horfnar. Þó svo að hálf öld sé liðin frá andláti þessarar einstöku konu er hún allt annað en gleymd og verður það seint. Fjöldi dyggra aðdáenda þokkagyðjunnar er í dag samankominn í heimabæ hennar til að minnast tímamótanna og hafa kvenkynsaðdáendur klætt sig upp til að líkja ástrúnaðargoðinu og ekki er það spurt um aldur né fyrri störf.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Sjá meira