Fótbolti

Ryan Giggs kvartaði undan tæklingum Senegalanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ryan Giggs.
Ryan Giggs. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ryan Giggs, fyrirliði breska Ólympíuliðsins, var ekki sáttur við harðar tæklingar leikmanna Senegal í leik þjóðanna í gær. Bretland og Senegal gerðu þá 1-1 jafntefli en Afríkumennirnir létu finna vel fyrir sér í leiknum.

Markaskorarinn Craig Bellamy og Joe Allen eru báðir tæpir fyrir næsta leik eftir harðar tæklingar í leiknum og Ryan Giggs gagnrýndi þær eftir leikinn.

„Manu hefði örugglega fengið þrjú rauð spjöld ef að þessi leikur hefði verið í ensku úrvalsdeildinni," sagði Ryan Giggs.

„Það voru nokkrar grófar tæklingar og sumir í liðinu okkar eiga í basli eftir þær," sagði Giggs sem átti þátt í marki breska liðsins en það kom eftir aukaspyrnu hans.

Aliou Cisse, þjálfari Senegal var ekki sammála Giggs. „Ég skil ekki hvað menn eru að tala um því við vorum að spila við breskt lið þar sem þeir gera svo mikið úr baráttuanda leikmanna. Ég man ekki eftir einni ljótri tæklingu í þessum leik," sagði Cisse.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×