Dagur afboðar komu sína á fund Útgerðarmannafélags Reykjavíkur 2. júní 2012 19:16 Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur afboðað komu sína á fund sem Útgerðarmannafélag Reykjavíkur hafði óskað með honum sem varaformanni Samfylkingarinnar og formanni Borgarráðs. Dagur tilkynnir þetta á Facebook síðu sinni en þar útskýrir hann ástæðuna svona: „Þessar aðgerðir LÍÚ eru algerlega óásættanlega. Það er sorglegt að útgerðarmenn í Reykjavík virðast ætla að taka undir þær og augljóst að ekki er hægt að eiga fundi undir formerkjum óbilgirni af þessu tagi." Þarna vísar Dagur til ákvörðunar aðildarfélaga LÍÚ um að fara ekki til veiða í næstu viku til þess að mótmæla kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar sem eru til meðferðar hjá Alþingi. Hart hefur verið deilt um ákvörðunina, meðal annars sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna í dag, að ákvörðunin um að halda flotanum heima, væri ógeðfelld. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, hefur boðið stjórnmálamönnum á fund með útgerðinni á þriðjudaginn þar sem hann vonast til þess að útgerðarmenn og stjórnmálamenn geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri.
Tengdar fréttir Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“ „Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag. 2. júní 2012 18:33 Steingrímur J. Sigfússon segist sleginn yfir útspili LÍÚ "Ég er ansi hugsi og sleginn yfir þessum síðasta útspili LÍÚ,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, um boðaða vinnustöðvun skipaflota aðildarfélaga LÍÚ, sem var tilkynnt um í dag. Steingrímur segist líta á útspilið sem einhverskonar yfirlýsingu um að LÍÚ telji sig hafa tapað rökræðunni. 2. júní 2012 16:59 Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2. júní 2012 14:29 Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15 Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda "Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag. 2. júní 2012 15:53 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira
Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“ „Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag. 2. júní 2012 18:33
Steingrímur J. Sigfússon segist sleginn yfir útspili LÍÚ "Ég er ansi hugsi og sleginn yfir þessum síðasta útspili LÍÚ,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, um boðaða vinnustöðvun skipaflota aðildarfélaga LÍÚ, sem var tilkynnt um í dag. Steingrímur segist líta á útspilið sem einhverskonar yfirlýsingu um að LÍÚ telji sig hafa tapað rökræðunni. 2. júní 2012 16:59
Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2. júní 2012 14:29
Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15
Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda "Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag. 2. júní 2012 15:53