Þjófarnir klónuðu stolna bíla 14. september 2012 04:00 Bílaþjófar Fjöldi Pólverja hefur verið dæmdur vegna stuldar á bílum í Danmörku.
Lögregluyfirvöld í Danmörku og Póllandi hafa afhjúpað pólskt þjófagengi sem stolið hefur að minnsta kosti 40 dýrum bílum í Danmörku. Stolnum bílum var ekið til Póllands þar sem þeir voru „klónaðir“, að því er haft er eftir dönsku lögreglunni á fréttavef Jyllands-Posten. Þjófarnir fjarlægðu gamla kenninúmerið á grindinni og settu á nýtt auk þess sem sett var ný stýrislæsing í bílana og nýr kveikilás. Í janúar á þessu ári stöðvaði lögreglan á Jótlandi tvo Pólverja á bíl með pólskum númeraplötum. Lögreglan komst að því að bíllinn hefði verið „klónaður“ og í framhaldinu hófst samvinna við pólsk lögregluyfirvöld. Aðalbækistöðvar þjófagengisins reyndust vera í bæ á landsbyggðinni fjarri stórum borgum. Lögreglan fann ekki bara stolna bíla heldur einnig mikið magn varahluta og dýrra verkfæra. Fjöldi Pólverja hefur verið dæmdur vegna málsins. Sá sem talinn er vera höfuðpaurinn kemur fyrir rétt í Danmörku nú í september. Skömmu eftir að þjófagengið var afhjúpað fækkaði stuldum á lúxusbílum og bílum handverksmanna verulega. Lögreglan bendir á að í þessum bransa komi hins vegar alltaf ný gengi. - ibs
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira