Erlent

Felix bauðst til þess að kenna Ban Ki-moon fallhlífarstökk

Frá stökki Baumgartners. Ótrúlegt afrek.
Frá stökki Baumgartners. Ótrúlegt afrek.
Hinn hljóðfrái Felix Baumgartner, sem stökk úr 39 kílómetra hæð á dögunum og rauf um leið hljóðmúrinn, bauðst til þess að kenna Ban ki-moon hjá Sameinuðu þjóðunum fallhlífarstökk fyrr í dag.

Framkvæmdastjórinn þekktist ekki boðið en Felix bauðst til þess að kenna Ki-moon fallhlífarstökk á blaðamannafundi hjá Sameinuðu þjóðunum í ljósi afreks austurríska ofurhugans. Ban Ki-moon sagði þar meðal annars að Felix væri hugrakkasti maður veraldar.

Skemmst er að minnast þess að í dramatísku stökki sínu féll Felix niður 39 kílómetra og sló um leið fjögur heimsmet.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×