Innlent

Áhyggjufullur vinur frá Lettlandi sendi tölvupóst

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Meðalfellsvatn.
Meðalfellsvatn.
Leit Landhelgisgæslu og lögreglu að 42 ára gamalli lettneskri konu, Ligitu Solomenceva, sem ekkert hefur spurst til síðan um miðjan maí, bar engan árangur í gær.

Þyrla frá Landhelgisgæslunni flaug yfir Meðalfellsvatn, meðfram ánni og niður að sjó og nærliggjandi svæði síðdegis í gær án árangurs. Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, sagði í samtali við fréttastofu nú í morgun að lögregla hefði engar vísbendingar um ferðir konunnar - aðrar en þær að vitað er fyrir víst að hún var við Meðalfellsvatn 14. og 15. maí.

Hún kom til landsins um miðjan mánuðinn og hafði þá leigt sér sumarbústað við vatnið í nokkra daga. Vinur hennar frá Lettlandi sendi lögreglu tölvupóst og eftir það ákvað lögregla að hefja leit að konunni. Konan virðist ekki hafa haft tengsl við fólk hér á landi nema að vitað er um eina fjölskyldu sem hún kannaðist við. Konan var með léttan farangur og náðist á myndavél þegar hún sótti línpoka fyrir sumarbústaðinn. konan virðist ekki eiga neina nákomna ættingja og eftir því sem lögregla best veit er hún fráskilin og barnlaus.

Síðast þegar hún sást var hún klædd í svartan leðurjakka, bláar gallabuxur og bláa og hvíta strigaskó. Lögregla hefur óskað eftir því við bændur og sumarbústaðaeigendur á svæðinu að grennslast fyrir í nærliggjandi bústöðum og útihúsum og ef einhver getur veitt upplýsingar um ferðir Ligitu er fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband í síma 444 1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×