Erlent

Ætlaði að sprengja Seðlabanka Bandaríkjanna

Seðlabanki Bandaríkjanna í New York.
Seðlabanki Bandaríkjanna í New York. MYND/AFP
Talið er að 21 árs gamall karlmaður frá Bangladesh hafi ætlað að sprengja byggingu Seðlabanka Bandaríkjanna í loft upp. Maðurinn, sem heitir Quazi Muhammed Rezwanul Ahsan Nafis, var handtekinn í New York í dag.

Alríkislögreglan í Bandaríkjunum hefur fylgst náið með ferðum Quazi síðustu mánuði en hann ferðaðist vestur til Bandaríkjanna í janúar á þessu ári. Þá er hann talin tengjast hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda.

Quazi ætlaði að sprengja rúmlega 450 kílóa sprengju fyrir utan Seðlabankann í New York. Hann hlóð sprengjunni í sendibíl og lagði honum fyrir utan bygginguna.

Það var þó aldrei nein hætta á ferðum enda voru samstarfsmenn hans útsendarar Alríkislögreglunnar.

Ljóst er að sprengja Quazis hefði valdið gríðarlegu tjóni hefði hún sprungið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×