Bráðnun Norðurpólsíssins ávísun á afbrigðilegt og verra veðurfar 10. september 2012 06:19 Til vinstri má sjá íshelluna við Norðurpólinn eins og hún var árið 1979. Til hægri er staðan í dag.
Vísindamenn við Norsku heimsskautastofnunina hafa miklar áhyggjur af aukinni bráðnun íssins á Norðurpólnum. Þeir telja bráðnunina ávísun á afbrigðilegt og verra veðurfar í heiminum. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun á vefsíðu Verdens Gang um málið. Þar segir Nalan Koc yfirmaður rannsóknardeildar stofnunarinnar að breytingarnar á ísnum á Norðurpólnum séu mun meiri en nokkrar spár gerðu ráð fyrir í fortíðinni. Íshellan hefur minnkað um 20% á fimm árum og bráðnunin hefur færst verulega í aukanna í sumar. Í ágústmánuði bráðnuðu yfir 90.000 ferkílómetrar á dag af ísnum og það er að minnsta kosti vika þar til sú þróun stöðvast. Íshellan er orðin nær helmingi minni en hún var árið 1979. Koc segir að afbrigðilegt veðurfar eins og miklir þurrkar í Bandaríkjunum og aukin tíðni fellibylja eins og Ísaks megi sennilega rekja til bráðnunar á Norðurpólsísnum. Hann nefnir að júlímánuður í Bandaríkjunum hafi verið sá heitasti síðan mælingar hófust. Alvarleg keðjuverkun sé hafin. Í stað þess að geislar sólarinnar endurkastist af ísnum hiti þeir yfirborð hafsins. Því meir sem ísinn bráðnar því meir nær sólin að hita hafið og þar með einnig andrúmsloft jarðarinnar. Þetta muni að lokum hækka yfirborð sjávar við strendur Norður Atlantshafsins og setja dýralíf við þær úr skorðum. Hér má bæta við að landsbyggðin á Bretlandseyjum er talin hafa tapað um milljarði punda eða nær 200 milljörðum króna vegna þess hve veðurfarið á Bretlandseyjum var afleitt í sumar. Það voru helst bændur og ferðamannaþjónustan sem urðu fyrir barðinu á veðurfarinu.
Mest lesið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Innlent Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Innlent Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Innlent Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Erlent Fleiri fréttir Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Sjá meira