Erlent

Talibanar ætla að fella Harry Bretaprins

Talibanar ætla sér að fella Harry Bretaprins í Afganistan ef þeim gefst tækifæri á slíku.

Þetta kemur fram í viðtali við einn af talsmönnum Talibana við AFP fréttastofuna. Hann segir að til sé ítarleg áætlun um að gera árás á prinsinn og hersveit hans.

Harry Bretaprins mun gegna herþjónustu við Bastion herstöðina í Hellman héraðinu næstu fjóra mánuðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×